Join Nostr
2026-03-09 00:00:00 GMT

Matthías Ragnarsson on Nostr: Það er búið að líða allt of langur tími, en hérna er ég með smá innlegg. ...

Það er búið að líða allt of langur tími, en hérna er ég með smá innlegg.

Ég kláraði nokkrar kóðunarkáskoranir BOSS áskorunarinnar sem ég nefndi hér áður:

- Láta aðeins eina Bitcoin Core einingaprufu falla (C++)
- Signet Veski 1: Reikna heildarupphæð í veski sem notar p2tr vistföng (Rust)
- Signet Veski 2: Búa til færslu sem sendir pening á 2-af-2 multisig og aðra sem sendir þann pening og býr til OP_RETURN (Rust)
- Velja myntir úr veski fyrir lista af færslum sem á að gera með sendingargjaldi undir ákveðnu lágmarki (Rust)
- Einföld lnd lightning uppsetning og prufun á að fjármagna og senda (Shell)
- Búa til lightning leið þar sem gjöld og CLTV tímaskeið eru hafð í huga (Rust)

Ég er bara sáttur við það sem ég lærði þarna. Síðari hluti þessarrar dagskrár innifelur frekari lærdóm með fólki innan þessa geira, en ég fór í að byrja tvö verkefni sem vonandi gerir fólki kleift að framleiða vefsíðu úr Nostr gögnunum sínum með Hugo "static site generator" á auðveldari hátt og forðast leiðinlegt javascript í vefvafranum, sem er eitthvað sem ég elska að hata. Ég nota þau núna til að framleiða vefsíðuna mína:

https://github.com/straumer/huno

https://github.com/straumer/hugo-nostr